Karíbar voru frumbyggjaþjóð í sunnanverðri Ameríku. Þegar Spánverjar komu til Nýja heimsins voru Karíbar fjölmennasti hópurinn á norðurhluta Kólumbíu, í stærstum hluta Venesúela og á sumum af Litlu-Antillaeyjum.

Karíbar voru álitnir herskáir villimenn sem stunduðu mannát. Raunar er enska orðið „cannibal“ (mannæta) dregið af nafni þeirra, og Karíbahaf ber einnig nafn þjóðarinnar. Á íslensku nefnist þjóðin Karíbar.

Karíba útgáfa er bókmenntaleg brú milli Suður-Ameríku og Íslands. Karíba var stofnuð á Flateyri af hjónunum Helen Hafgný Cova og Sigurði Grétari Jökulssyni. Við gefum út bækur á íslensku, ensku og spænsku, allt frá barnabókum til ljóða og skáldsagna, og leggjum sérstaka áherslu á raddir sem sjaldan heyrast í íslensku bókmenntalífi.

Við trúum því að bókmenntir eigi heima alls staðar, ekki aðeins í stórborgum. Þess vegna stöndum við meðal annars að Bókmenntahátíð Flateyrar, þar sem höfundar, þýðendur og lesendur hittast í hjarta Vestfjarða. Hjá Karíbu eru bækur brú á milli tungumála, menningarheima og fólks, og við bjóðum þér að ganga yfir hana með okkur.

Hafðu samband

Opnunartími
Monday–Friday
9:00 - 17:00

Símanúmerið
+354 7843745

Heimilisfang
Drafnargata 17. 425. Flateyri - Iceland